|
Post by Admin on Apr 24, 2019 13:13:28 GMT
Ég fór í dag í snemmsónar skv mínum útreikningi á ég að vera komin 6v1d. En hann seinkaði mér í 5v2d ca. Ég fer aftur eftir 2 vikur.Ég á 2 stelpur fyrir og ég hef aldrei verið seinkuð um svona marga daga.
|
|
|
Post by lisaskvisa on Apr 24, 2019 13:23:51 GMT
Samkvæmt því sem ég reikna út ætti ég að vera komin sléttar 7 vikur í dag. Fer í snemmsónar í næstu viku, kemur vonandi betur í ljós þá. Þetta er mitt fyrsta
|
|
|
Post by sunna:) on Apr 24, 2019 20:45:51 GMT
er komin 7v5d skv mínum útreikningum fer í snemmsonar á föstudaginn þá komin akkúrat 8, fæ þá vonandi að sjá litla baun!
|
|
maddy
New Member
Posts: 2
|
Post by maddy on Apr 25, 2019 1:57:17 GMT
Til hamingju með þungunina stelpur. Ég er komin 8 vikur ☺️
|
|
una
New Member
Posts: 5
|
Post by una on Apr 25, 2019 21:34:12 GMT
Hæhæ. Til hamingju allar 😊 Ég er komin 8 vikur og einn dag. Sett 4. des. Fyrsta barn.
|
|
|
Post by Emm on Apr 26, 2019 12:22:20 GMT
Ég er um 6-7 vikurnar. Strax farin að finna ógleði og hægðatregðu og skemmtileg heit. Eruð þið flestar búnar fara í snemmsónar og að panta ykkur tíma i mæðravernd?
|
|
una
New Member
Posts: 5
|
Post by una on Apr 26, 2019 21:06:48 GMT
Já. Ég er búin að fara í snemmsónar. Átti að heyra frá ljósmóður í dag en hún hringdi ekki. Er á Heilsugæslu í Drápuhlíð. Þekkið þið eitthvað til ljósmæðra þar? Einhver betri en önnur?
|
|
|
Post by sunflower on Apr 28, 2019 9:30:37 GMT
Ég er bara komin rúmlega 4 vikur, er tæknilega séð janúarbumba. En engin grúppa komin og ég er óþolinmóð
|
|
|
Post by disaskvisa on Apr 28, 2019 18:22:06 GMT
Ég fór í fyrsta viðtal hjá mæðravernd á föstudaginn og fékk líka tíma já kvensjúkdómalækni í snemmsónar seinasta laugardag. Mér sagt að ég væri komin 5v6d en skv. mínu dagatali ætti ég að vera komin 6v4d. Þetta er mitt fyrsta Kvensjúkdómalæknirinn sá reyndar annað fóstur. Mun minna. Gat ekki séð hjartslátt hjá því en það sást alveg greinilega hjartsláttur á því stærra. Hann vildi meina að þetta væri sennilega vanishing shadow twin. Gæti samt verið annað fóstur sem hefur ekki náð stærð til að sjá hjartslátt.
|
|
una
New Member
Posts: 5
|
Post by una on Apr 29, 2019 8:24:50 GMT
En sérstakt disaskvisa. Eflaust margar hugsanir og spurningar sem vakna þegar svona sést í sónar.
|
|
|
Post by disaskvisa on Apr 29, 2019 12:20:11 GMT
Já þetta kom á óvart. Verst er eiginlega óvissan. Læknirinn talaði svo um að þetta gæti verið algengara en fólk heldur. Af því ég fór svona snemma þá sást þetta. Í næstu skoðun gæti tvíbbinn ekki sést ef hann er lífslaus. Þetta sást ekki hjá ljósmóðurinni. Ég fór í svona utan-maga sónar hjá henni en hjá lækninum þá var farið upp í leghálsinn. Það er bara hægt að bíða og sjá hvað verður.
|
|
|
Post by Sandra on Apr 29, 2019 18:28:24 GMT
Settur dagur skv snemmsónar á að vera 6 desember! Við hjónin erum búin að reyna í tæpt ár þannig mikil gleði hér á bæ.
|
|
curie
New Member
Posts: 3
|
Post by curie on Apr 29, 2019 20:23:19 GMT
Var í snemmsónar í morgunn og samkvæmt honum eru 8 vikur á morgunn.... sem samt segir að frjóvgun hafi átt sér stað þegar maðurinn minn var í vinnuferð held 8 vikur í gær séu nærri lagi
|
|
|
Post by mjollin on Apr 29, 2019 21:53:02 GMT
Hæhæ til hamingju allar 😍.. ég fer í snemmsónar núna 2 maí og er að deyja úr spenningi.samkvæmt mínum útreikningum er ég komin 7v+3d 2 barn.
|
|
|
Post by Gll on May 1, 2019 22:28:57 GMT
Til hamingju allar. Ég er komin 9 vikur er sett 30 November en býst viđ desember barni. Fór tvær vikur fram yfir međ mitt fyrsta.
|
|