|
Post by Admin on Apr 26, 2019 9:50:32 GMT
Ég átti minn versta dag í gær, ég var gjörsamlega out, deyja úr ógleði og þreytu. Þetta var eins og versta þynnka, ég í raun reis upp um kl 15:00 í gær. Sem betur fer var kallinn heimna til að hjálpa mér með stelpurnar. En ég er með ógleði allan daginn ogmjög þreytt. Bakflæði farið að gera vart við sig. Þvílíkt pirruð í löppunum á nóttunni. Ég var nákvæmlega eins með báðar stelpurnar mínar, ætli ég sé ekki að fá 3 stelpuna
|
|
una
New Member
Posts: 5
|
Post by una on Apr 26, 2019 11:48:08 GMT
Úff...hljómar frekar erfitt. Leitt að heyra. 😔 Ég fæ væga velgju oftast seinnipartinn. Er aðeins þreyttari en vanalega. Var með bakverk og bakflæði fyrir óléttu. Aðeins verri í bakinu en bakflæðið hefur sem betur fer ekki versnað (ennþá) þó ég sé hætt að taka lyfin. Mér er mjög illt í brjóstunum, mér finnst mér alltaf vera kalt og svo er ég að steypast út í bólum...
|
|
|
Post by Admin on Apr 26, 2019 13:43:39 GMT
Já ég er alveg sammála þér með að vera alltaf kalt. Ég sit heima í þykkri peysu og sokkum og undir teppi, samt alveg hrollur í mér.
|
|
|
Post by disaskvisa on Apr 28, 2019 18:31:40 GMT
Úff já ég tengi með þreytuna. Hef sloppið hingað til við morgunógleðina en hún gæti komið. Mér finnst ég oft vera bara hálf manneskja útaf þreytunni. Tók tvær leggjur yfir daginn í gær og eina í dag. Manni langar helst að vera bara heima uppí sófa og undir teppi.
|
|
|
Post by Sandra on Apr 29, 2019 18:30:23 GMT
Ég er bara frekar kvíðin yfir því að það sé ekkert að malla þarna inni þar sem ég er ekki með ein einustu einkenni.
|
|