|
Post by Emm on May 5, 2019 21:38:03 GMT
Sælar... ég er um 8 vikur á leið. Mér hefur verið mjög óglatt en það sem er aðallega að hrjá mig eru kviðverkir. Mér hefur verið ótrúlega illt maganum sl 2 vikurnar (eiginlega síðan ég komst að því að ég væri ólétt). Maginn útblásinn og get varla komið niður mat. Buxur strax hættar að passa á mig. Er einhver ykkar að tengja við þetta? Þetta er mitt annað barn og ég man ekki eftir að þetta hafi truflað mig svona síðast.
|
|
|
Post by S on May 5, 2019 21:47:08 GMT
Ég er bara svo rosalega svöng alltaf, og verð aldrei södd og fékk mikla vindverki til að byrja með. Annars eru einkennin ekki fleiri.
|
|
|
Post by Admin on May 6, 2019 14:42:09 GMT
God já, ég er búin að vera útblásin síðan ég fékk jákvætt(daginn sem ég átti að byrja ár túr) ég er komin 7v1d núna. Mér finnst ég vera eins og fíll, kemst ekki í gallabuxurnar mínar. Ég fór að taka bakflæðislyf því ég var líka með það, það lagaði þetta samt alveg smá. En ég er með mjög milla ógleði allan sólarhringinn. Bakflæði. Útblásin með "vindverki" Pirruð í fótunum. Brjóstin eru orðin huges….
Ég held ég hafi bara fengið allt sem hægt var að fá. Takk fyrir mig.
|
|
|
Post by ugla on May 6, 2019 20:04:38 GMT
Er líka komin 8 vikur og magaverkir og ógleði mjög svo að hrjá mig, finnst ógleðin verða verri með hverjum deginum bara. Ég var rosalega slæm af kviðverkjum fyrst en finnst þeir vera að skána.
|
|